Hlutverk trúnaðarmanna
Stéttarfélagið er bakhjarl trúnaðarmannsins
Mjög misjafnt getur verið eftir stéttarfélögum hvaða skyldum og hlutverkum trúnaðarmönnum er ætlað að gegna.
Trúnaðarmaður er félagsmaður í stéttarfélagi sem valinn er af samstarfsmönnum sínum til þess að gæta hagsmuna þeirra gagnvart vinnuveitanda. Trúnaðarmaður stendur ekki einn og er stjórn og starfsmenn stéttarfélags honum til aðstoðar við að leysa úr þeim erindum sem upp kunna að koma og heyra undir starfssvið stéttarfélagsins. Mikilvægasta hlutverk trúnaðarmannsins er að vera tengiliður milli félagsmanna á vinnustað og vinnuveitanda annars vegar og milli félagsmanna og stéttarfélags hins vegar.
Samkvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna skal trúnaðarmaður gæta þess að vinnuveitandi haldi kjarasamning og réttur starfsmanna sé í hvívetna virtur, einkum um orlof, vinnuvernd, öryggi og hollustuhætti. Samkvæmt fyrrnefndum lögum ber trúnaðarmanni að rannsaka umkvartanir félagsmanna þegar í stað og komist hann að því að umkvartanir eða grunur hafi við rök að styðjast ber honum að krefja vinnuveitanda um lagfæringu.
Helstu hlutverk trúnaðarmanns gætu verið þessi:
- Hafa eftirlit með því að atvinnurekandi fari eftir ákvæðum kjarasamnings, laga og reglugerða um starfskjör og réttindi starfsmanna og grípa til nauðsynlegra aðgerða ef þörf er á.
- Meta hvaða ákvæðum kjarasamninga og reglna er æskilegt að breyta til að bæta kjör eða draga úr vanda við framkvæmd og gera stéttarfélaginu grein fyrir því, m.a. þegar staðið er að undirbúningi fyrir kröfugerð vegna kjarasamninga.
- Taka við umkvörtunum starfsmanna og vera talsmaður þeirra gagnvart atvinnurekanda.
- Vera fulltrúi stéttarfélagsins á vinnustað, sjá um að koma boðum frá félagsmönnum til félagsins og frá félaginu til félagsmanna. Kynna félagsmönnum stefnu stéttarfélagsins og verkefni hverju sinni.
- Taka á móti nýjum starfsmönnum, kynna þeim starfskjör og réttindi og kynna þeim stéttarfélagið og starfsemi þess.
|